|
|
11.02.2007 16:21:56 / magnusjo
Hæ hó. Ef einhver skildi enn detta inn á þessa síðu er ég
fluttur með bloggið mitt.
Ný slóð: http://maggimark.blog.is
Hlakka til að sjá sem flesta, ætla að reyna að vera
duglegur......
Maggi.
»
09.08.2006 08:37:36 / magnusjo
Hæhó.
Flottur dagur í gær, þriðjudag. Fyrst ber að nefna að núna
er loksins mætt til mín starfslið, deildarstjórarnir mættu til
vinnu í gær, hver öðrum ferskari og við bara lögð fínt af stað inn
í skólaárið. Almennt starfsfólk mætir 10.ágúst, kennararnir
15.ágúst og krakkarnir 22.ágúst. Spennó.
Svo fór fjölskyldan í hvalaskoðun frá Ólafsvík. Verð bara
að viðurkenna það að þetta kom mér verulega á óvart, bara ein
skemmtilegasta lífsreynsla sem ég hef náð mér í. Sáum
höfrunga að leik og síðan eltumst við við hrefnu, sem er afar
feiminn hvalur, enda oft verið að reyna að veiða hana.
Svo kom skyndilega tilkynning í hátalarakerfið, "blástur
framundan". Siglt var út í ballarhaf og eftir 20 mínútna
þrúgandi þögn á dekkinu og einstaka augnathygli sást stór sporður
sem var svo eltur, þar til að við sáum gríðarstóran búrhval rétt
hjá okkur, næst komumst við ca. 5 metra, þegar skepnan lyfti sér
ofarlega í hafflötinn og veifaði okkur með sporðinum.
Fjögurra tíma sigling, öll fjölskyldan. FRÁBÆRT.
Að tillögu Steinars hér á síðunni í kommentum er ég viss um að
ég prófa sjóstöng hér fljótlega, hrottaskemmtilegt að standa svona
á sjónum - ef ég hefði ekki verið svo heppinn að finna mér ævistarf
sem mér finnst skemmtilegt hefði ég örugglega skellt mér á
sjóinn. Þú ert einhvern veginn svo algerlega tengdur þér á
sjó. Allavega ég.
Skrifstofan að taka á sig mynd, en því miður hefur orðið enn töf
á húsinu okkar, enn á Gufuskálum, það eina neikvæða hér, sem þarf
að fara að útrýma.
»
08.08.2006 12:17:30 / magnusjo
Halló allir.
Jæja, flott Verslunarmannahelgi yfirstaðin og vinnan hafin á
fullum krafti. Fimmtudagurinn var bara látinn líða heimavið,
á Gufuskálum og í Ólafsvík. Ég varð ansi lasinn uppúr miðjum
degi, slappleiki sem stóð fram á föstudagsmorgunn. Sigga og
Ölli komu þann dag og við stormuðum í Stykkishólm, löbbuðum um
gamla bæinn og fengum okkur ís. Á leiðinni heim komum við við
í Bjarnarhöfn og fórum hlaðin hákarli og reyktum
rauðmaga.
Laugardagurinn var svo á sunnanverðu nesinu, fyrst á
Djúpalónssandi, svo á Hellnum og þá að Búðum. Við Hekla fórum
í Lýsuhólslaugina, sem er heljar upplifun, enda úr
ölkelduvatni.
Sunnudaginn fóru Stjáni og Laugi heim. Við lágum lengi á
meltunni en fórum svo í frábæra fjöruferð með Sigríði og
Heklu. Náttúran í sinni flottustu mynd, stórkostlegt veður og
frábær fjara.
Mánudaginn tókum við svo á Grundarfirði og í slökun á
Gufuskálum.
Frábær helgi, en nú er gleðin trufluð af vinnu, þó ætlum við í
hvalaskoðun í dag, svona til að hafa prófað sjóinn í Breiðafirðinum
líka.....
Maggi.
»
03.08.2006 09:03:32 / magnusjo
Halló.
Jæja, fyrsti pistill af Vesturlandinu, nánar tiltekið úr
Ólafsvíkinni, af nýju skrifstofunni. Því miður er enn verið
að vinna í húsinu, þannig að reikna má með því að við komumst ekki
inn í það fyrr en eftir helgi. Á meðan á því stendur erum við
staðsett í starfsmannaíbúð á Gufuskálum, mega stuð!
Hekla kom í gær og Thelma kemur í dag, fjölskyldan nær vonandi
einhverjum dögum í húsinu áður en allir byrja í skólum.
Stjáni og Laugi komu í Verslunarmannahelgarfrí í gærkvöldi og verða
fram á sunnudag, meiningin að finna skásta veðrið sem boðið verður
uppá á Nesinu, borða góðan mat, snæða og spjalla.
Skemmtilegt!
Meira seinna.
»
22.07.2006 09:28:39 / magnusjo
Hæhæ.
Jæja, smám saman að læra betur og betur að njóta mín svona
fótboltalaust. Hef reyndar fengið að fljóta með Stjána
karlinum á æfingar og leiki Keflavíkur og kann vel við það,
strákurinn að gera skemmtilega hluti suður með sjó.
Annars hefur fjölskyldan fengið að sjá mun meira af mér en
vanalega og ég er voðalega glaður með það að drottningarnar mínar
allar fjórar hafa lýst ánægju sinni með það! Helga og
Sigríður Birta komu sólbrúnar og sætar heim á miðvikudaginn í faðm
okkar hinna. Meðan þær voru úti fór ég með Thelmu og Heklu í
sumarbústaðinn hans pabba í Ráðleysu, fékk mikla slökun út úr því,
ásamt því að borða dásamlegt hrefnuket og flottan ís á þeim magnaða
stað Þingvöllum.
Síðustu dagar hafa farið í tékklistann vegna flutninganna,
sennilega tínum við inn í gáminn núna snemma í næstu viku, ætlum
reyndar að kíkja vestur á þriðju- og miðvikudag, gista á Gufuskálum
og kíkja á byggingarframkvæmdir, líta á skrifstofuna mína og taka
síðasta tékk fyrir endanlegan flutning. Hlakka MIKIÐ til!
Nú eru bara 10 dagar þar til ég byrja að vinna, svo ekki seinna
vænna en að fara að koma sér á staðinn!
Annars er svo búið að ákveða ferð á Strandir í ágúst svo að
lokum verður þetta sumar nú eitt það besta í sögunni minni þegar
allt kemur til alls.....
Þakka Siggu, Erlu og Brynjari kommentin. Binni minn, það
er búið að ráða allt í vetur, en ekki að spyrja að áhuga
skólastjórans að fá þig vestur næsta haust! Hefði virkilega
haft gaman af því að hitta uppáhaldsbekkinn og árganginn, en því
miður tókst það ekki, vonandi skemmtuð þið ykkur afar vel.
Takk sömuleiðis Erla mín, gaman að hitta þig sömuleiðis, alveg með
ólíkindum hvað hefur ræst úr þessum villingahópi, orðin glæsilegt
og þroskað fólk......eða???
Jæja, nóg í bili....
»
13.07.2006 12:59:25 / magnusjo
Jæja.
Smá ritstífla á meðan að erfiður tími í mínu sinni leið
yfir. Tók ákvörðun á þriðjudagskvöld og miðvikudagsmorgun að
hætta að þjálfa uppáhaldsstrákana mína í meistaraflokki ÍR.
Gekk frá starfslokum í gær og fór svo og kvaddi menn á æfingunni
í gærkvöldi. Drulludjöfullerfitt, en er bara tómur í dag....
Óskaplega glaður að geta dembt mér útí í skemmtilegt verk - að
byrja að skipuleggja skólastarfið í góðum skóla á glæsilegum stað
með góðu fólki. Sannfærður um að Snæfellsnesið og
Snæfellingar byggja upp eilítið bogið sjálfstraust.
Hvað þá fjölskyldan mín frábæra sem bakkar mig upp og knúsar enn
meira nú en áður. Helga og SBM gerðu það af krafti fyrir
Spánarför í gær og nú, auk draumanna tveggja, Heklu og Thelmu er
mamma komin. Drífa og Öddi náttúrulega að eltast við
hana, pabbi og Gulla, afi og amma stutt undan. Þar með er
maður umkringdur öllum sem maður elskar mest. Það er gott á
svona tímapunkti.
Verst að hafa Jonna Mourinho ekki nálægt, hann duglegur bakhjarl
frændans í gegnum tíðina. Veit hann er að hugsa til mín.
Þá er þessum kafla lokið í bili. Nú kemur í ljós hvort
þjálfunartímabilinu í mínu lífi er endanlega lokið eða hvort ég fer
aftur af stað seinna. Í augnablikinu sé ég ekki margt í
spilunum sem ýtir mér aftur af stað.....
Hins vegar hef ég lært í lífinu að segja aldrei aldrei. Í
kvöld ætla ég að fara til Keflavíkur og horfa á vini mína stjórna
leik Keflavíkur og ÍBV. Njóta þess að horfa á fótbolta sem
sannur áhugamaður án tengsla við eitt eða neitt.
Svo fer maður að drífa sig vestur, í augnablikinu er hreinlega
erfitt að keyra Breiðholtsbrautina, langar mikið að gleyma mér við
að horfa út á Breiðafjörðinn og uppá Snæfellsjökulinn. Ef það
að vera í slíku umhverfi með fólkinu sem maður elskar mest lagar
ekki málin, á maður bara að láta skjóta sér út í geim og vinna á
Sajud 7 fram að ævilokum.
Maggi í alvöru sumarfríi.
»
06.07.2006 08:34:57 / magnusjo
Jæja.
Fjölskyldan orðin róleg varðandi verðlaun á HM. Fyrst var
það Helga sem varð fyrir vonbrigðum þegar Ítalir slógu Þjóðverjana
út og í gær var það stútfull stofa í Lækjarfitinni sem varð að
sætta sig við að Portúgal tapaði fyrir 7 varnarmönnum, Zidane,
Henry og Ribery.
Eftir skelfilega fordóma í lýsingu Harðar kom þó í ljós að hann
hafði orðið sér að fífli þegar hann sagði Portúgal ekki hafa náð
tökum á leiknum, tölfræðin leiddi það í ljós. 59% með boltann
og 12 skot að marki gegn 5 Portúgölunum í vil. Mikið
óstjórnlega er ég ósáttur við umfjöllun Sýnar. Einfaldlega
ekki nægilega góðir þulir á leikjum og heimsóknirnar í sófann á
leikjum hreint ömurlegar. 2 áhugamenn sem yfirleitt hafa ekki
leikið knattspyrnu flissa og tala um enska boltann þann litla tíma
sem ekki er verið að skjóta inn auglýsingum.
RÚV getur ekki verið verra 2010. Það er ljóst.
Allavega, afslöppuð fjölskylda á sunnudaginn. Að íhuguðu
máli ákváðum við hjónaleysin að sameinast um Ítali sem betri
kost. Nenna að sækja og virka sem lið. Frakkarnir hlógu
að okkur á Laugardalsvellinum haustið ´98 fyrir leik. Nú
skulu þeir fá það borgað..........
»
04.07.2006 08:28:04 / magnusjo
Já, nú loksins skilur maður almennilega þegar rætt er um
sunnlensk rigningarsumur! Eftir ágæt sumur undanfarin ár held
ég að við höfum alveg leyfi til að grenja undan veðurfari
undanfarinna vikna.
10 - 12 stiga hiti, dumbungur gola og úrkoma. Ekki alveg
það sem vonir manns stóðu til - en vissulega er ennþá tími til að
hlutir lagist, júlí og ágúst vonandi hressari og heitari.
Annars var þögnin undanfarna daga í samræmi við erfiða
íþróttahelgi, þó ætla ég nú ekki að rabba um hana hér. Það er
að baki og framundan er undanúrslitavika á HM þar sem mitt lið
Portúgalir hafa náð ótrúlega langt, rækilega reknir áfram
af stórleik Luis Figo, sem ásamt Zinedine Zidane er að mínu
mati besti leikmaður keppninnar hingað til.
Gaman að því! Svo endar vikan á leik við vini mína úr
KS/Leiftri í Mjóddinni. Verður skemmtilegt!
Fjölskyldan hress, mamma rabbaði við okkur í gær, orðin spennt
að koma og við spennt að fá hana. Meira af því síðar.
Sigurjónarnir vinir okkar báðir í bústöðum þessa viku, planið að
kíkja á þá núna næstu daga, látum frétta af því.
»
30.06.2006 11:37:01 / magnusjo
Já mín kæru, nú er sko bara gefið út dagblað í
Lækjarfitinni!
Ætlaði að fara að vinna í morgun, en það frestaðist til seinni
parts, þannig að óvíst verður hvort maður nær Þýskaland -
Argentína. Sosum hræðileg örlög sem bíða mín, Helga Lind búin
að bjóða Klöru vinkonu sinni að koma og "HVETJA ÞÝSKALAND" á mínu
heimili í dag. Spáið nú í það!
Svo er kveðjuathöfn fyrir SBM á Sjálandi í dag, verður
skrýtið.... enn eitt official goodbye receptionið!
Þá síðasta æfing fyrir Völsungsleik, svo þarf að spá í hvort ég
sæki stelpurnar eftir æfinguna, eða hvort ég geri það eftir leik á
morgun.
Endalaust action og fjör í rokinu og rigningunni. Bendi
hér fólki á lýsandi dæmi, eftir æfingu í gær var kíkt
á Selfoss að horfa á leik í 2.deild. Kom heim kl. 23 til
að kyssa konuna góða nótt. Sönnun?
Ekki málið......
http://www.fotbolti.net/fullStory.php?id=36799?&flash=true
Huggulegir þjálfarar ÍR neðarlega á síðunni..... Að lokum
leiðrétting, heimilisfangið á Hellissandi er að sjálfsögðu SELhóll,
en ekki Snæhóll....
Aftur fljótlega, koma með Tékk-inn komment!
»
29.06.2006 10:47:48 / magnusjo
Júhú!
Hjólið vígt þetta sumarið í gær. Frábær ferðamáti, við
Birta stormuðum um Garðabæ og Kópavog í um klukkutíma í gær.
Þegar við komum heim var mín kona hundsúr, vildi ekki koma inn og
loksins þegar það tókst neitaði hún að taka af sér hjálminn!!!!
Skapið kemur frá mömmunni, bara svo að það sé á hreinu......
Skemmtileg æfing í gær og svo bara sjónvarpshangs. Fór með
Birtu á hjólinu í leikskólann á morgun og svo rennur
dagurinn í fótboltamál. Fyrst þarf ég að hitta Braga út
af alls konar leikmannamálum, svo æfing og svo skreppur á Selfoss
til að sjá Selfoss spila við Reyni......
Stelpurnar gömlu koma svo á morgun til að vera hjá okkur fram í
ágúst, svo kemur mamma og Lucy með henni 11.júlí. Flott
sumar, hvað þá þegar farið verður í það að raða inn í Snæhól
2......´
»
27.06.2006 09:49:18 / magnusjo
Jæja, jæja, jæja.......
Svei mér þá. Ætla að gera tilraun til að blogga núna smá
reglulega, vona að einhverjir nenni ennþá að líta hingað inn annað
slagið á meðan, væri ágætt að fá komment um það!
Annars, er að klára Breiðholtsskólann og byrjaður að undirbúa
skólann í Snæfellsbænum, hlakka gríðarlega til. Enn er þó
ekki komin endanleg dagsetning á flutningana - en vonandi stenst
1.ágúst ennþá.
Fótboltinn upp og niður, mikið niður um helgina þannig að við
þurfum núna að girða okkur í brók ÍR-ingar.
Allavega, byrjum smátt í dag, en verðum kannski heimspekilegir
fljótlega..........
»
20.05.2006 10:50:58 / magnusjo
Mínir fáu hundtryggu lesendur!
Loksins get ég lekið því sem lengi hefur staðið til. Við
Helga höfum tekið ákvörðun um það að flytja fjölskylduna okkar á
Snæfellsnes, nánar tiltekið í Snæfellsbæ.
Þar tek ég við starfi skólastjóra Grunnskólans sem hefur 3
starfsstöðvar, í Ólafsvík, á Hellissandi og á Lýsuhóli. Helga
Lind fer að vinna við Framhaldsskóla Snæfellinga á
Grundarfirði.
Þessi ákvörðun hefur verið lengi í bígerð, okkur hefur lengi
langað aftur út á land, til að komast úr því tímaleysi og þeim
hraða sem einkennir allt líf okkar hér.
Að fá tækifæri til að flytjast á jafn stórkostlegt svæði og
vestanvert Snæfellsnes er og eiga kost á því að hafa áhrif á það
umhverfi var fullkomið tækifæri sem við höfum nú gripið báðum
höndum.
Við hlökkum óstjórnlega mikið til að setjast að á Hellissandi í
ágúst og bjóðum hér með öllum vinum og kunningjum að koma og kíkja
í kaffi þangað. Heimilisfang auglýst síðar, þegar það er
endanlega klárt!
Maggi.
»
26.04.2006 21:54:59 / magnusjo
Hæhó.
Jæja, styttist í samræmdu prófin, með sorgum sínum og
gleði! Alltaf soldið skrýtinn tími þegar þessir indælu
skjólstæðingar manns leggja af stað í ansi stóran áfanga, sem þó er
nú sennilega ofmetinn.
Skipulagsvinna fyrir næsta vetur að hefjast, það er líka
skemmtilegt verkefni. Semsagt skemmtilegur tími í
vinnunni!
Reyndar einn mínus, kemst ekki í óvissuferð starfsfólksins
5.maí, þarf að fara með liðinu mínu á hinn mýstíska stað Hellissand
að æfa og spila við Víkinga frá Ólafsvík.
Svona er það, bara vinna, lítil gleði!
Maggi.
»
21.04.2006 09:07:27 / magnusjo
Halló.
Vikan frekar tíðindalítil. Sigríður Birta búin að vera
veik frá á mánudag þannig að útlit er fyrir að fjölskylduferðin til
Akureyrar detti uppfyrir. Fúlt! Ætluðum á skíði og
annað skemmtilegt en núna stefnir í heimahelgi.
Gætu komið tíðindi fljótlega þó, mikið að brjótast um í höfðum
okkar Helgu Lindar sem gæti þýtt breytingar á högum
fjölskyldunnar.
Annars rólegt, boltinn ekki að byrja alveg strax, samræmdu
prófin ekki í gangi núna og bara smúþþ seiling.....
Maggi.
»
18.04.2006 10:47:52 / magnusjo
Hæ.
Frá því síðast hefur ýmislegt gengið á. Fyrst var að nefna
skíðaferð í Bláfjöll með Breiðholtsskóla, án skíðaiðkunar þó!
Starfsmenn svæðisins skamm, skamm!
Vinnan var dugleg í því að taka af manni tímann! Það má
segja að síðustu dagar fyrir páskafrí hafi verið afar uppteknir af
því að undirbúa samræmd próf, ganga frá tímum og finna fundi fyrir
þau börn og forráðamenn sem þurfti að funda með
Páskafríið fór svo að stórum hluta í Danmerkurferð okkar
ÍR-inga. Flugum út 10.apríl og tókum rútu til Stoholm á
Jótlandi, rétt hjá Viborg. Ferðin heppnaðist mjög vel í alla
staði, vellirnir reyndar eins og íslenskir vorvellir, en það var
það sem ég vildi! Stutt á vellina og matur og svefnaðstaða
til fyrirmyndar. Dagur í Kaupmannahöfn var svo skreytingin á
kökunni! Þann dag varð ég 35 ára, 14.apríl. Fékk að
sjálfsögðu dónalega afmælisgjöf frá strákunum! Heimferðin fín
og ég lenti beint í fermingarundirbúningi.
Fermingardagurinn í gær var svo frábær í alla staði.
Thelma glæsilegri en nokkru sinni fyrr. Presturinn var með
góða ræðu sem fjallaði um hve gott fólk unglingar væru. Of
sjaldan talað um þá staðreynd! Veislan heppnaðist vel,
Sigurjón kokkur er náttúrulega snillingur! Jenný kom og
hjálpaði okkur við eldhússtörfin. Þeim skuldum við stóra
greiða og kunnum miklar þakkir fyrir.
Fjölskyldur Thelmu stormuðu til að gleðja hana, mér fannst
ánægja og gleði svífa yfir öllu sem gerðist og Guð blikkaði til
okkar sólargeislum til að fullkomna verkið. Takk allir fyrir
frábæran dag!
Maggi.
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
|